Hjarðartún

Hjaðartún er í fyrsta sinn með lið í ár en það er ekki skipað neinum aukvissum. Helga Una Björnsdóttir er liðsstjóri liðsins en aðrir knapar eru þeir Elvar Þormarsson, Hans Þór Hilmarsson, Jakob Svavar Sigurðsson og Þórarinn Ragnarsson.

Helga Una Björnsdóttir, liðsstjóri, útskrifaðist sem reiðkennari frá Háskólanum á Hólum árið 2018. Helga Una er reynslu mikill knapi og hefur skapað sér gott orð bæði á keppnisbrautinni sem og kynbótabrautinni. Helga Una setti heimsmet á Sendingu frá Þorlákshöfn sumarið 2015 þegar hún sýndi hana í 8,64, sem var þá hæsta aðaleinkunn sem klárhross hafði hlotið. Helga Una hefur einnig náð góðum árangri í ræktun og vakti hún mikla athygli á hesti sínum Bikari frá Syðri-Reykjum. Helga Una varð einnig Íslandsmeistari á Besta frá Upphafi í 100m. Skeiði og á Þoku frá Hamarsey í slaktaumatölti árið 2019.

Elvar Þormarsson stundar tamningar og þjálfun á Hvolsvelli og ræktar hross kennd við Strandarhjáleigu. Elvar hefur verið ötull á keppnisvellinum sem og kynbótabrautinni síðustu ár. 

Hans Þór Hilmarsson er menntaður reiðkennari og tamningamaður frá Hólaskóla. Hann starfar við tamningar og þjálfun í Hjarðartúni en Hansi hefur náð góðum árangri á keppnis- og kynbótabrautinni. Var m.a. 4. sæti í A-flokki árið 2012, á besta tímann á árinu í 100.m skeiði 2015 og var í A-úrslitum í fimmgangi 2016 á Lukku-Láka frá Stóra-Vatnsskarði.

Jakob Svavar Sigurðsson er tamningamaður og reiðkennari frá Hólaskóla. Hann rekur tamningastöð að Fákshólum. Hann hlaut knapaverðlaun FT á LM2008, Íslandsmeistari í slaktaumatölti 2010, 2012 og 2013, Íslandsmeistari í fimmgangi 2012 og 2013 á Al frá Lundum og Íslandsmeistari í fjórgangi 2013 á Eldi frá Köldukinn. Jakob sigraði B flokkinn á LM2016 á Nökkva frá Syðra-Skörðugili, varð í þriðja sæti í A flokki á Skýr frá Skálakoti og hlaut knapaverðlaun FT. Hann hefur jafnframt verið að gera góða hluti í kynbótasýningum. Jakob var kosinn íþróttaknapi ársins 2012, 2013 og 2018 og gæðingaknapi ársins 2016. 

Þórarinn Ragnarsson er menntaður tamningamaður og reiðkennari frá Háskólanum á Hólum. Hann stundar þjálfun og tamningar í Vesturkoti á Skeiðum. Hefur náð góðum árangri á keppnisbrautinni en hann sigraði m.a. A flokkinn á LM2014 á Spuna frá Vesturkoti og var í A úrslitum í tölti á sama móti á Þyt frá Efsta-Dal. Þórarinn og Spuni urðu einnig Íslandsmeistarar í fimmgangi árið 2017 og sigruðu sömu grein á Reykjavíkurmótinu sama ár. Þytur og Þórarinn sigruðu einnig Þá alla sterkustu, ístöltsmótið, sem haldið var vorið 2014. Þórarinn var valin gæðingaknapi ársins 2014.

 

Hrossaræktarbúið Hjarðartún er staðsett í Hvolhreppi u.þ.b 2 km norður af Hvolsvelli. Í Hjarðartúni er frábær aðstaða sem tekin var í notkun árið 2007. Þáverandi eigandi, Óskar Eyjólfsson, byggði hesthús sem rúmar 36 hross ásamt reiðhöll, vélaskemmum og nýju íbúðarhúsi. Óskar ræktaði hross undir nafni Hjarðartúns, þar sem hestagullið og Landsmótssigurvegarinn Dögg frá Breiðholti var ein af aðalræktunarhryssum búsins. Árið 2015 kaupa hjónin Kristín Heimisdóttir og Bjarni Elvar Pjetursson og félag þeirra Einhyrningur ehf Hjarðartún og halda áfram uppbyggingu og ræktun búsins þar sem 3 til 4 tamningamenn starfa allan ársins hring. Í dag samanstendur ræktunin af hryssum frá Hjarðartúni og Eystra-Fróðholti með áherslu á að rækta undan langræktuðum gæðingshryssum. 

 

Facebook slóðir


Fara á forsíðu

FYLGSTU MEÐ!

Bein útsending á oz.com - Náðu í áskrift hér
Watch all the events online - subscribe here

Netáskrift

styrktaraðilar

Höfundaréttur © 2008 - 2015 | Meistaradeildin í hestaíþróttum | Allur réttur áskilinn.