Meistaraknapi tekinn til kostanna: Hulda Gústafsdóttir
Hulda Gústafsdóttir er liðsmaður liðs Árbakka / Hestvit / Sumarliðabæ og hefur átt góðu gengi að fagna í Meistaradeildinni.
Fullt nafn: Hulda Gústafsdóttir
Gælunafn sem þú þolir ekki: . Gamla geit
Aldur: 51
Hjúskaparstaða: gift
Uppáhalds drykkur: pepsi max
Uppáhalds matsölustaður: Kol
Hvernig bíl áttu: Audi
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: var að horfa á Big little lies, algerlega frábærir þættir
Uppáhalds tónlistarmaður: Ed Sheeran, allavega núna
Skemmtilegasti “vinur" þinn á Snapchat: Klanið sem er stórfjölskyldan
Hvað viltu í bragðarefinn þinn: banana, dajm og jarðaber
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: „hélt ég væri í vitlausri vél“ , frá Eddu Hrund að koma heim frá Grænlandi
Sætasti sigurinn: fimmgangur á Birki frá Vatni á Islandsmóti 2016 held ég bara
Mestu vonbrigðin: Að við Birkir frá Vatni skulum ekki hafa fengið tækifæri til að spreyta okkur á HM 2017
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru Meistaradeildarliði í þitt lið: tek þetta doldið lengra, hvernig væri að búa til stelpulið? Ég, Aðalheiður, Þórdís, Sylvía, Olil, Elin Holst, Edda Rún, Ragnhildur Haralds, Berglind Ragnars, Freyja Amble, Hanne, Agnes Hekla. Myndum rústa þessu!
Fyrsta verk ef þú yrðir formaður Meistaradeildarinnar: kaupa Ingólfshvol og hafa keppnina í framhaldinu þar
Fallegasti hestamaðurinn á Íslandi: Hinni Braga
Fallegasta hestakonan á Íslandi: Edda Hrund Hinriksdóttir
Hver er mesti höstlerinn í liðinu: allir svipaðir, þessir gaurar
Mest óþolandi knapinn í liðinu: Hinni liðsstjóri
Uppáhalds staður á Íslandi: Árbakki í Landsveit
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í keppni: Ég get verið alveg svakalega seinheppin, einu sinni var ég að ríða hrikalega flott fimmgangsprógramm á Stefni frá Tunguhálsi sem ég fór seinna með á HM, þetta var þegar hjálmaskylda var að detta inn og ég var með teygjuhjálm. Á skeiðinu skoppaði hjálmurinn af mér og eftir japl jaml og fuður var ég dæmd úr leik.... ohhh, týpískt!
Hvað er það fyrsta sem þú gerir þegar þú vaknar: opna augun og bursta tennur
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: nokkuð jöfn í flestu, held ég að ég geti sagt... Tölfræði í Háskólanum var mér sennilega erfiðust..
Uppáhalds Eurovision lag frá upphafi: sænska lagið, hérna, Hero held ég bara
Vandræðalegasta augnablik: það er klárlega þegar ég reið B flokks úrslit á LM 2012 á Sveig frá Varmadal. Ég var í Fáksjakka sem ég fékk lánaðan og hafði ekki verið notaður mjög lengi. Tvinninn í tölunum virtist orðinn fúinn, og þegar leið á úrslitin fóru tölurnar að skjótast af jakkanum. Ég var hálf vandræðaleg og var að hugsa hvað ég gæti gert en Hinni og Gústi drápust úr hlátri á hliðarlínunni. Eftir keppnina, á meðan verið var að lesa upp einkunnir hlógum við öll að þessu inni á vellinum og Einar Öder og Viðar Ingólfs færðu mér tölur sem þeir fundu á vellinum J algerlega óborganlegt móment!
Hvaða tvo knapa sem tækir þú með þér á eyðieyju: Hinna og Gústa, það er hægt að hlæja með þeim.
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Var gengin 3 mánuði með Gústa á HM 1995 þegar ég varð önnur í fimmgangi og þriðja í slaktaumatölti. Það var 30 stiga hita eiginlega allt mótið og mér var hrikalega flökurt allan tímann, nærðist á appelsínusafa og ístei.
Fyrir utan hestamennsku, fylgist þú með öðrum íþróttum: ja, fótbolta svolítið, kemst ekki hjá því og þegar íslensku landsliðin spila, í handbolta og fótbolta