Tveri nýir í liði Heimahaga

Nú er rétt mánuður í að Meistaradeild í hestaíþróttum hefjist en fyrsta mót fer fram í Fákaseli þann 9. febrúar en keppt verður í fjórgangi. Nú á næstu dögum ætlum við að kynna hvert lið fyrir sig en fyrsta liðið sem við kynnum til sögunnar er lið Heimahaga.

Heimahagi er ung og framsækin hrossarækt í eigu Jóhanns Ólafssonar og Þorbjargar Stefánsdóttur. Lið Heimahaga tók fyrst þátt í Meistaradeildinni árið 2013. Liðið er nokkuð breytt frá því fyrra en Ísólfur Líndal Þórisson og Ævar Örn Guðjónsson hafa yfirgefið liðið en í stað þeirra eru Sigurður Óli Kristinsson sem var í liði Hrímnis/Export hesta í fyrra og Sigursteinn Sumarliðason sem kemur nýr inn í deildina eftir nokkra ára pásu frá deildinni. Aðrir í liðinu eru Guðmar Þór Pétursson, liðstjóri, John Kristinn Sigurjónsson og Davíð Jónsson.

Guðmar Þór Pétursson, liðstjóri, hóf að stunda hestamennsku ungur að aldri og hóf fljótlega glæstan keppnisferil. Þrátt fyrir ungan aldur hefur aðeins einn aðili hampað fleiri Íslandsmeistara titlum. Guðmar er félagi í FT og hefur einnnig hlotið hæstu gráðu sem veitt er í leiðbeinendaprófi Hólaskóla. Guðmar starfaði lengi í Ameríku en er nú komin heim og starfar á Ingólfshvoli í Ölfusinu

John Kristinn Sigurjónsson er tamningamaður FT og starfar við tamningar á Laugabökkum, John hefur verið að gera góða hluti í keppni og kynbótasýningum á undanförnum árum.  John sigraði m.a. fimmgang meistaradeildarinnar í fyrra á stóðhestinum Konsert frá Korpu.

Davíð Jónsson starfar sem tamningamaður á Skeiðvöllum. Davíð hefur látið mikið á sér kveða á skeiðbrautinni síðustu ár en hann sigraði 100m. skeiðið á LM2012 í Reykjavík á hryssnni Irpu frá Borgarnesi.

Sigurður Óli Kristinsson er tamningamaður á Selfossi. Sigurður hefur verið viðloðandi keppni og kynbótasýningar um árabil og hefur meðal annars riðið til sigurs á Íslands-, Heimsmeistara-, og Norðurlandamótum.

Sigursteinn Sumarliðason er tamningarmaður á Ármóti. Sigursteinn hefur ná góðum árangri á keppnisvellinu, bæði í gæðinga og íþróttakeppni, en þá sérstaklega í tölti en hann vann það afrek að verða Landsmótsmeistari í tölti í annað sinn í röð á LM2012 í Reykjavík.



Fara á forsíðu

FYLGSTU MEÐ!

Bein útsending á oz.com - Náðu í áskrift hér
Watch all the events online - subscribe here

Netáskrift

styrktaraðilar

Höfundaréttur © 2008 - 2015 | Meistaradeildin í hestaíþróttum | Allur réttur áskilinn.