Ráslisti fyrir fimmganginn
Þá er ráslistinn klár fyrir fimmganginn en fyrstur í braut er Hinrik Bragason á Byr frá Borgarnesi en þeir eru orðnir nokkuð reyndir í þessari keppnisgrein. Keppnin hefst kl. 19:00 en hún fer fram í Samskipahöllinni í Spretti í Kópavogi. Húsið opnar 17:00 en boðið verður upp á ofnbakað lambalæri með gratíneruðum kartöflum, rjómalagaðri sveppasósu og fersku salati því er tilvalið að mæta snemma og fá sér að borða á undan.
Margt verður um gæðinginn í Samskipahöllinni þetta kvöldið en á listanum eru margir hátt dæmdir stóðhestar þ.á.m. Hrafn frá Efri - Rauðalæk en knapi á honum er Daníel Jónsson. Hrafn hefur hlotið 9,03 fyrir hæfileika og þar af 9.5 fyrir skeið. Matthías Leó mætir með Hafstein frá Vakursstöðum en hann höfum við séð áður undir handleiðslu Teits Árnasonar en Hafsteinn hefur hlotið 9.5 fyrir skeið í kynbótadómi. Árni Björn Pálsson mætir með tíu skeiðarann Roða frá Lyngholti og Olil Amble mætir með engan annan en Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum sem hlaut 9.5 fyrir skeið í kynbótadómi. Sigurbjörn Bárðason mætir með Nóa frá Stóra-Hofi en hann hefur einnig hlotið 9.5 fyrir skeið. Sigurvegari fimmgangsins frá því í fyrra Hulda Gústafsdóttir teflir nú fram Gangster frá Árgerði en Gangster vakti mikla athygli í A flokki á LM2014 á Hellu. Íslandsmeistarinn í fimmgangi Þórarinn Ragnarsson mætir með Hilding frá Bergi en þeir voru í A úrslitum í þessari grein í fyrra.
Ekki láta þessa veislu framhjá ykkur fara og tryggið ykkur miða inn á tix.is en einnig verða seldir miðar í anddyri. Einnig er hægt að horfa beint frá keppninni inn á oz.com og á Stöð 2 sport.
No. | Knapi | Hestur | Faðir | Móðir | Litur | Aldur | Lið |
1 | Hinrik Bragason | Byr frá Borgarnesi | Hlynur frá Haukatungu Syðri 1 | Ísold frá Leirulækjarseli 2 | Jarpvind | 9 | Árbakki / Hestvit / Sumarliðabær |
2 | Guðmundur Björgvinsson | Þór frá Votumýri 2 | Álfur frá Selfossi | Önn frá Ketilsstöðum | Rauður | 10 | Lífland |
3 | Matthías Leó Matthíasson | Hafsteinn frá Vakurstöðum | Álfasteinn frá Selfossi | Hending frá Hvolsvelli | Rauðskj | 10 | Top Reiter |
4 | Ævar Örn Guðjónsson | Kolskör frá Hárlaugsstöðum 2 | Tenór frá Túnsbergi | Frigg frá Hárlaugsstöðum | Brún | 8 | Gangmyllan |
5 | Bergur Jónsson | Stúdent frá Ketilsstöðum | Álffinnur frá Syðri-Gegnishólum | Orku frá Gautavík | Bleiksj. | 8 | Gangmyllan |
6 | Daníel Jónsson | Hrafn frá Efri-Rauðalæk | Markús frá Langholtsparti | Hind frá Vatnsleysu | Brúnstj | 10 | Oddhóll / Þjóðólfshagi / Efsta-Sel |
7 | Olil Amble | Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum | Keilir frá Miðsitju | Álfadís frá Selfossi | Fífilbleikbles | 9 | Gangmyllan |
8 | Sigurður Vignir Matthíasson | Gormur frá Efri-Þverá | Blær frá Torfunesi | Rauðkolla frá Litla-Moshvoli | Brúnn | 12 | Ganghestar / Margrétarhof /Equitec |
9 | Ragnhildur Haraldsdóttir | Þróttur frá Tungu | Þokki frá Kýrholti | Sól frá Tungu | Brúnn | 11 | Ganghestar / Margrétarhof /Equitec |
10 | Jakob Svavar Sigurðsson | Skýr frá Skálakoti | Sólon frá Skáney | Vök frá Skálakoti | Rauðbles | 11 | Lífland |
11 | Hulda Gústafsdóttir | Gangster frá Árgerði | Hágangur frá Narfastöðum | Glæða frá Árgerði | Rauðstj | 12 | Árbakki / Hestvit / Sumarliðabær |
12 | Ásmundur Ernir Snorrason | Kaldi frá Ytra-Vallholti | Kná frá Ytra-Vallholti | Apríl frá Skeggsstöðum | Móálót | 7 | Auðsholtshjáleiga |
13 | Sigurður Sigurðarson | Álfsteinn frá Hvolsvelli | Álfur frá Selfossi | Eydís frá Stokkseyri | Brúnskj. | 11 | Oddhóll / Þjóðólfshagi / Efsta-Sel |
14 | Viðar Ingólfsson | Óskahringur frá Miðási | Hróður frá Refsstöðum | Ósk frá Hestheimum | Brúnstj | 10 | Hrímnir / Export hestar |
15 | Teitur Árnason | Sjóður frá Kirkjubæ | Sær frá Bakkakoti | Þyrnirós frá Kirkjubæ | Brúnn | 11 | Lífland |
16 | Sylvía Sigurbjörnsdóttir | Héðinn Skúli frá Oddhóli | Grunur frá Oddhóli | Folda frá Lundi | Móálót | 13 | Auðsholtshjáleiga |
17 | Sigursteinn Sumarliðason | Krókus frá Dalbæ | Vilmundur frá Feti | Flauta frá Dalbæ | Brúnn | 10 | Lífland |
18 | Þórdís Erla Gunnarsdóttir | Vaki frá Auðsholtshjáleigu | Toppur frá Auðsholtshjáleigu | Vordís frá Auðsholtshjáleigu | Rauðskj | 7 | Auðsholtshjáleiga |
19 | Sigurbjörn Bárðarson | Nói frá Stóra-Hofi | Illingur frá Tóftum | Örk frá Stóra-Hofi | Brúnskj. | 10 | Oddhóll / Þjóðólfshagi / Efsta-Sel |
20 | Hans Þór Hilmarsson | Kylja frá Stóra-Vatnsskarði | Kiljan frá Steinnesi | Lukka frá Stóra-Vatnsskarði | Rauðbles | 7 | Hrímnir / Export hestar |
21 | Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir | Brimnir frá Efri-Fitjum | Hnokki frá Fellskoti | Ballerína frá Grafarkoti | Bleikál. | 9 | Ganghestar / Margrétarhof /Equitec |
22 | Ólafur Brynjar Ásgeirsson | Freyja frá Vöðlum | Forseti frá Vorsabæ II | Nótt frá Oddsstöðum I | Brúnn | 8 | Árbakki / Hestvit / Sumarliðabær |
23 | Þórarinn Ragnarsson | Hildingur frá Bergi | Uggi frá Bergi | Hilda frá Bjarnarhöfn | Brúnstj | 8 | Hrímnir / Export hestar |
24 | Árni Björn Pálsson | Roði frá Lyngholti | Ómur frá Kvistum | Glóð frá Kálfhóli | Rauður | 8 | Auðsholtshjáleiga |