Meistaraknapi tekinn til kostanna: Hinrik Bragason
Fullt nafn: Hinrik Bragson
Gælunafn sem þú þolir ekki: . í augnablikinu ekkert sérstakt
Aldur: 49
Hjúskaparstaða: giftur
Hvenær tókstu fyrst þátt með meistaradeildinni: 2001, þegar þú hún byrjaði
Uppáhalds drykkur: gott kaffi
Uppáhalds matsölustaður: Kol
Hvernig bíl áttu: Ford 350
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Enski boltinn
Uppáhalds tónlistarmaður: Coldplay
Skemmtilegasti “vinur" þinn á Snapchat: Er á snapchat en opna það eiginlega aldrei svo ég veit ekki
Hvað viltu í bragðarefinn þinn: sem mest af súkkulaði og lakkrís og banana og, og, og
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Minnum á aðalfundinn kl 18 á Hótel Örk J frá Huldu Finns
Sætasti sigurinn: A flokkur LM 2011
Mestu vonbrigðin: annað sæti í tölti á HM 1991
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru Meistaradeildarliði í þitt lið: hugsa að ég myndi vilja taka Viðar Ingólfs, hann er svo skemmtilega jákvæður alltaf J
Fyrsta verk ef þú yrðir formaður Meistaradeildarinnar: Byggja alvöru leikvang fyrir Meistaradeildina í fullri vallarstærð þar sem áhorfendur sitja allt í kringum völlinn
Fallegasti hestamaðurinn á Íslandi: Gústi minn er langflottastur
Fallegasta hestakonan á Íslandi: Hulda og Edda Hrund, get ekki gert upp á þeirra
Hver er mesti höstlerinn í liðinu: að sjálfsögðu Óli Binni Ásgeirs
Mest óþolandi knapinn í liðinu: Hulda....
Uppáhalds staður á Íslandi: Árbakki
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í keppni: eitt sinn þegar ég var 11 ára var ég að keppa í stökki á Kóngi frá Ásum vestur í Dölum. Í startinu sprakk gjörðin sem var utanyfir hnakkinn og hnakkurinn fór aftur í nára. Ég hékk á hálsinum á honum yfir marklínu og komst í úrslit og vann svo úrslithlaupið. Kappreiðarnar voru sko fjör
Hvað er það fyrsta sem þú gerir þegar þú vaknar: Kveiki á kaffivélinni og finn ipadinn til að lesa fréttirnar.
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: dönsku
Uppáhalds Eurovision lag frá upphafi: lagið með Sylvíu Nótt
Vandræðalegasta augnablik: Þegar ég og Hjörtur Bergstað vorum í kappakstri út úr Reykjavík og vorum teknir á 170km hraða og pabbi minn hafði orði á því sama daginn að hann hefði heyrt i fréttunum að tveir miðaldra karlmenn hefðu verið teknir fyrir ofsaakstur á leið út úr Reykjavík. Það var mjög neyðarlegt.
Hvaða tvo knapa sem tækir þú með þér á eyðieyju: Ég myndi taka Hafliða Halldórs til að veiða í matinn og svo líklega Huldu til að allt væri undir stjórn
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: á orðið auðvelt með að vakna á morgnana
Fyrir utan hestamennsku, fylgist þú með öðrum íþróttum: já,er yfirleitt alæta á gott sport. Íþróttir eru mitt uppáhaldssjónvarpsefni