Hans fimmta hjólið

Sjöunda liðið sem við kynnum til leiks er lið Ganghesta/Margrétarhofs. Liðsmenn í þessu liði eru hjónin Sigurður Vignir Matthíasson, liðsstjóri, og Edda Rún Ragnarsdóttir ásamt Reyni Erni Pálmasyni, Aðalheiði Önnu Guðjónsdóttur og Hans Þór Hilmarssyni.

Sigurður Vignir Matthíasson starfar á Fákssvæðinu í Reykjavík ásamt eiginkonu sinni. Sigurður hefur verið nokkrum sinnum í íslenska landsliðinu bæði á heimsmeistaramótum og Norðurlandamótum. Hann er margfaldur heims- og Íslandsmeistari, Landsmótssigurvegari og svo mætti lengi telja.

Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir er útskrifaður tamningamaður og reiðkennari frá Háskólanum á Hólum. Hún starfar á Hrossaræktarbúinu Króki/Margrétarhofi. Aðalheiður hefur verið að gera það gott bæði á keppnisbrautinni sem og á kynbótabrautinni. Aðalheiður tók sér eitt ár í pásu frá Meistaradeildinni en hún vakti mikla athygli í Meistaradeildinni fyrir tveimur árum þegar hún varð m.a. önnur í gæðingafiminni á Sprettu frá Gunnarsstöðum.

Edda Rún Ragnarsdóttir er fædd inn í mikla hestamannafjölskyldu og hefur stundað útreiðar og hestamennsku frá því að hún man eftir sér. Faðir hennar er hinn þekkti hestamaður og knapi Ragnar Hinriksson og afi hennar, Hinrik Ragnarsson, var þjóðkunnur hestamaður á sinni tíð. Edda Rún hefur náð glæstum árangri í gæðingakeppni og hefur unnið fjölda Íslandsmeistaratitla í hestaíþróttum, í barna-, unglinga- og fullorðinsflokki og má þar nefna Íslandsmeistaratitil í fjórgangi í opnum flokki á Reyni frá Hólshúsum á Íslandsmótinu í Garðabæ 2005.

Hans Þór Hilmarsson er menntaður reiðkennari og tamningamaður frá Háskólanum á Hólum og starfar við tamningar og þjálfun á Kílhrauni. Hansi hefur náð góðum árangri á keppnisbrautinni var m.a. í 4. Sæti í a flokki á Landsmóti árið 2012, átti besta tímann á árinu í 100m. skeiði 2015 og var í a úrslitum í fimmgangi á Íslandsmótinu 2016 á Lukku-Láka frá Stóra-Vatnsskarði. Hann hefur einnig verið framarlega á kynbótabrautinni undanfarin ár.

Reynir Örn Pálmason starfar á Hrossaræktarbúinu Króki/Margrétarhofi. Reynir Örn starfaði lengi í Svíþjóð og hefur náð góðum árangri í keppni, var m.a. í úrslitum í slaktaumatölti á Norðurlandamótinu árið 2012 og hefur unnið marga glæsta sigra á Íslandi, m.a. á gæðingnum Baldvini frá Stangarholti. Síðustu ár hefur Reynir verið í fremstu röð bæði í fimmgangi og slaktaumatölti á Greifa frá Holtsmúla. Þeir voru í landsliði Íslands á HM2015 í Herning þar sem þeir urðu samanlagðir sigurvegarar í fimmgangsgreinum og urðu í öðru sæti bæði í fimmgangi og slaktaumatölti.

Ganghestar ehf. er alhliða hestamiðstöð þar sem boðið er upp á hefðbundna þjónustu við hestafólk, kaup og sölu á hrossum, reiðkennslu, frumtamningar og þjálfun á kynbóta- og keppnishrossum. Eigendur fyrirtækisins eru Sigurður Vignir Matthíasson og Edda Rún Ragnarsdóttir. Ganghestar ehf. er með aðsetur að Fákabóli 3 á félagssvæði Fáks og er starfsemi í gangi þar allan ársins hring. Yfir sumartímann fer þar einnig fram starfsemi Reiðskóla Reykjavíkur sem er í eigu sömu rekstaraðila.

Á Króki i Ásahrepp er rekið hrossaræktarbú þar sem eru ræktuð hross undir ræktunarnafninu Margrétarhof en nafnið vísar til ræktunar sem eigendurnir stunda á búgarði sínum í Svíþjóð, Margaretehof (mhof.se). Markmiðið er að stunda hrossarækt með 8 - 10 góðum merum. Einnig er rekin alhliða þjálfunarmiðstöð á staðnum, boðið upp á kennslu, ásamt því að hafa ávallt á boðstólnum góð vel tamin söluhross. Einnig er boðið upp á fóðrun og uppeldi.



Fara á forsíðu

FYLGSTU MEÐ!

Bein útsending á oz.com - Náðu í áskrift hér
Watch all the events online - subscribe here

Netáskrift

styrktaraðilar

Höfundaréttur © 2008 - 2015 | Meistaradeildin í hestaíþróttum | Allur réttur áskilinn.