Jakob Meistarinn 2019

Þá er æsispennandi Meistaradeild Cintamani í hestaíþróttum lokið í ár. Það var mjótt á munum í einstaklingskeppninni en það fór svo að Jakob S. Sigurðsson er Meistarinn 2019 með 55 stig. Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir endaði í öðru sæti einungis 2,5 stigi á eftir Jakobi eða með 52,5 stig og í þriðja sæti varð Árni Björn Pálsson með 37 stig.

Liðakeppnina sigraði lið Hrímnis/Export hesta en þeir hlutu 360 stig. Liðsmenn eru Viðar Ingólfsson (liðsstjóri), Hans Þór Hilmarsson, Helga Una Björnsdóttir, Siguroddur Pétursson og Þórarinn Ragnarsson. Í öðru sæti varð lið Top Reiter með 338,5 stig og í því þriðja varð lið Líflands með 325,5 stig.

 

Niðurstöður úr liða- og einstaklingskeppni er hægt að sjá hér



Fara á forsíðu

FYLGSTU MEÐ!

Bein útsending á oz.com - Náðu í áskrift hér
Watch all the events online - subscribe here

Netáskrift

styrktaraðilar

Höfundaréttur © 2008 - 2015 | Meistaradeildin í hestaíþróttum | Allur réttur áskilinn.