Árni Björn, Jakob og Konráð sigurvegarar kvöldsins

Lokakvöld Meistaradeildar Cintmani í hestaíþróttum fór fram í gær í Víðidalnum í Reykjavík. Mikil spenna ríkti fyrir kvöldinu þar sem einungis örfá stig skildu á milli liða og knapa í einstaklings- og liðakeppninni.

Kvöldið hófst á forkeppni í tölti þar sem glæsilegustu töltarar landsins öttu kappi saman. Eftir forkeppni stóð Jakob Svavar Sigurðsson efstur á Júlíu frá Hamarsey. Mikið var í húfi hjá Jakobi en fyrir kvöldið leiddi hann einstaklingskeppnina og mátti líti út af bregða þar sem Árni Björn Pálsson fylgdi honum fast eftir með einungis 1,5 stig minna. Árni Björn nældi sér einnig í sæti í úrslitunum í tölti en hann varð fjórði inn í úrslit á Ljúf frá Torfunesi. Úrslitin voru glæsileg og var mikil stemming í húsinu. Þau fóru þannig að Jakob tryggði sér efsta sætið með 8,78 í einkunn en annar varð Árni Björn með 8,56 í einkunn. Í þriðja sæti var svo Viðar Ingólfsson á Pixi frá Mið-Fossum með 8,17 í einkunn.

Þetta þýddi einungis eitt að úrslitin í einstaklingskeppninni myndu ráðast í skeiðinu. Eftir fyrri sprett lá hvorugur hesturinn hjá Árna eða Jakobi þannig að það var allt undir í seinni sprettinum. Árni var fyrr í rásröð og hryssa hann Skykkja frá Breiðholti í Flóa fór á fljúgandi siglingu á skeiði í gegnum húsið og hlutu þau tímann 4.88 sek, þriðja besta tíma kvöldsins, það mátti heyra saumnál detta þegar beðið var eftir að Jakob kæmi í gegnum höllina á Straumi frá Skrúð en Straumur vildi ekki skeiða þetta kvöldið, tíminn enginn og því sigurinn í einstaklingskeppninni í höfn hjá Árna Birni, fjórða árið sem hann sigrar hana en hann sigraði einnig árið 2014, 2015 og 2016. Annar í einstaklingskeppninni var Jakob og þriðji Viðar Ingólfsson. Sigurvegari flugskeiðsins var hins vegar Konráð Valur Sveinsson á Kjarki frá Árbæjarhjáleigu II með tímann 4,73 sek. en Konráð og Kjarkur eru búnir að standa í fremstu röð í skeiðkappreiðum síðustu árin. Annar var Guðmundur Björgvinsson á Íslandsmetshafanum Glúmi frá Þóroddsstöðum með tímann 4,75 sek.

Liðakeppnina sigraði lið Líflands með 350 stig en liðsmenn voru þeir Jakob, Guðmundur, Davíð Jónsson, John Kristinn Sigurjónsson og Sigursteinn Sumarliðason. Rétt á eftir þeim var lið Hrímnis / Export hesta með 345 stig og í því þriðja var lið Top Reiter með 326 stig.

Niðurstöður kvöldsins

Tölt - A úrslit      
No. Rider Horse Team Score
1 Jakob Svavar Sigurðsson Júlía frá Hamarsey Lífland 8.78
2 Árni Björn Pálsson Ljúfur frá Torfunesi Top Reiter 8.56
3 Viðar Ingólfsson Pixi frá Mið-Fossum Hrímnir / Export hestar 8.17
4 Hulda Gústafsdóttir Draupnir frá Brautarholti Árbakki / Hestvit / Sumarliðabær 7.61
5 Guðmundur Friðrik Björgvinsson Austri frá Úlfsstöðum Lífland 7.50
6 Teitur Árnason Sólroði frá Reykjavík Top Reiter 7.06
         
Tölt - Forkeppni      
No. Rider Horse Team Score
1 Jakob Svavar Sigurðsson Júlía frá Hamarsey Lífland 8.70
2 Viðar Ingólfsson Pixi frá Mið-Fossum Hrímnir / Export hestar 8.20
3 Hulda Gústafsdóttir Draupnir frá Brautarholti Árbakki / Hestvit / Sumarliðabær 7.93
4 Árni Björn Pálsson Ljúfur frá Torfunesi Top Reiter 7.80
5 Guðmundur Friðrik Björgvinsson Austri frá Úlfsstöðum Lífland 7.77
6 Teitur Árnason Sólroði frá Reykjavík Top Reiter 7.73
7 Ásmundur Ernir Snorrason Frægur frá Strandarhöfði Auðsholtshjáleiga / Horse export 7.63
8 Þórarinn Ragnarsson Hringur frá Gunnarsstöðum Hrímnir / Export hestar 7.57
9 Elin Holst Frami frá Ketilsstöðum Gangmyllan 7.40
10 Lára Jóhannsdóttir Gormur frá Herríðarhóli Ganghestar / Margrétarhof / Equitec 7.33
11 Hinrik Bragason Hreimur frá Kvistum Árbakki / Hestvit / Sumarliðabær 7.30
12 John Kristinn Sigurjónsson Æska frá Akureyri Lífland 7.27
13 Bergur Jónsson Herdís frá Lönguhlíð Gangmyllan 7.23
14 Matthías Leó Matthíasson Taktur frá Vakurstöðum Top Reiter 7.13
15 Siguroddur Pétursson Steggur frá Hrísdal Hrímnir / Export hestar 7.07
16 Ævar Örn Guðjónsson Vökull frá Efri-Brú Gangmyllan 7.00
17 Ragnar Tómasson Sleipnir frá Árnanesi Árbakki / Hestvit / Sumarliðabær 6.90
18-19 Sylvía Sigurbjörnsdóttir Sæmd frá Vestra-Fíflholti Auðsholtshjáleiga / Horse export 6.83
18-19 Janus Halldór Eiríksson Blíða frá Laugarbökkum Auðsholtshjáleiga / Horse export 6.83
20 Sigurbjörn Bárðarson Elvur frá Flekkudal Oddhóll / Þjóðólfshagi / Efsta-Sel 6.73
21 Berglind Ragnarsdóttir Ómur frá Brimilsvöllum Oddhóll / Þjóðólfshagi / Efsta-Sel 6.70
22-23 Reynir Örn Pálmasson Marta frá Húsavík Ganghestar / Margrétarhof / Equitec 6.67
22-23 Sigurður Vignir Matthíasson Byr frá Grafarkoti Ganghestar / Margrétarhof / Equitec 6.67
24 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Óskar frá Breiðstöðum Ganghestar / Margrétarhof / Equitec 6.60
         
Flugskeið      
No. Rider Horse Team Score
1 Konráð Valur Sveinsson Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II Oddhóll / Þjóðólfshagi / Efsta-Sel 4.73
2 Guðmundur Friðrik Björgvinsson Glúmur frá Þóroddsstöðum Lífland 4.75
3 Árni Björn Pálsson Skykkja frá Breiðholti í Flóa Top Reiter 4.88
4 Bjarni Bjarnason Randver frá Þóroddsstöðum Auðsholtshjáleiga / Horse export 4.96
5 Þórarinn Ragnarsson Hákon frá Sámsstöðum Hrímnir / Export hestar 4.97
6 Davíð Jónsson Irpa frá Borgarnesi Lífland 5.09
7 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Ása frá Fremri-Gufudal Ganghestar / Margrétarhof / Equitec 5.11
8 Hinrik Bragason Björt frá Bitru Árbakki / Hestvit / Sumarliðabær 5.12
9 Sigurbjörn Bárðarson Vökull frá Tunguhálsi II Oddhóll / Þjóðólfshagi / Efsta-Sel 5.12
10 Bergur Jónsson Sædís frá Ketilsstöðum Gangmyllan 5.14
11 Ævar Örn Guðjónsson Hrappur frá Sauðárkróki Gangmyllan 5.16
12 Viðar Ingólfsson Blikka frá Þóroddsstöðum Hrímnir / Export hestar 5.21
13 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Lilja frá Dalbæ Auðsholtshjáleiga / Horse export 5.21
14 Sigurður Sigurðarson Drift frá Hafsteinsstöðum Oddhóll / Þjóðólfshagi / Efsta-Sel 5.24
15 Elvar Eylert Einarsson Segull frá Akureyri Gangmyllan 5.25
16 Hans Þór Hilmarsson Tinna frá Árbæ Hrímnir / Export hestar 5.30
17 Reynir Örn Pálmasson Líf frá Framnesi Ganghestar / Margrétarhof / Equitec 5.31
18 Sylvía Sigurbjörnsdóttir Dalvar frá Horni I Auðsholtshjáleiga / Horse export 5.32
19 Hulda Gústafsdóttir Klókur frá Dallandi Árbakki / Hestvit / Sumarliðabær 5.46
20 Herbert Ólafsson Spurning frá Vakurstöðum Top Reiter 5.67
21 Teitur Árnason Jökull frá Efri-Rauðalæk Top Reiter 0.00
22 Ragnar Tómasson Isabel frá Forsæti Árbakki / Hestvit / Sumarliðabær 0.00
23 Sigurður Vignir Matthíasson Léttir frá Eiríksstöðum Ganghestar / Margrétarhof / Equitec 0.00
24 Jakob Svavar Sigurðsson Straumur frá Skrúð Lífland 0.00


Fara á forsíðu

FYLGSTU MEÐ!

Bein útsending á oz.com - Náðu í áskrift hér
Watch all the events online - subscribe here

Netáskrift

styrktaraðilar

Höfundaréttur © 2008 - 2015 | Meistaradeildin í hestaíþróttum | Allur réttur áskilinn.