Ráslisti fyrir fjórganginn

Þá eru ráslistarnir klárir fyrir fjórganginn en fyrst í braut er sigurvegarinn frá því í fyrra, Elin Holst á Frama frá Ketilsstöðum. Það er því augljóst að línurnar verða lagðar strax í byrjun en margir veðja á að þau muni blanda sér í toppbaráttuna. 

Bergur Jónsson var annar í fyrra á Kötlu frá Ketilsstöðum en hann mætir í ár á Glampa frá Ketilsstöðum, mjög efnilegum fjórgangarann en spennandi er að sjá hvernig þeim tekst til. Jakob Svavar mætir með Júlíu frá Hamarsey en þau voru í þriðja sæti í fyrra og nokkuð öruggt að þau munu blanda sér í toppbaráttuna ásamt þeim Árna Birni Pálssyni og Straumi frá Sólvangi en þeir voru einnig í A úrslitum í fyrra. Aðrir sem náðu A úrslitum í fyrra, Freyja Amble, Sigurður Matthíasson og Guðmundur Björgvinsson mæta með nýja hesta til leiks.

Miðasala gengur mjög vel en ársmiðar rjúka út og greinilegt að margir vilja tryggja sér húfu frá Cintamani sem er næstum jafn mikils virði og andvirði ársmiðans. Við mælum því með að fólk tryggi sér miða inn á TIX.IS.  Athugið að húfurnar verða afhentar andyri reiðhallarinnar.

Húsið opnar kl. 17:00 en setning deildarinnar hefst kl. 18:30. Það er því nægur tími að koma snemma og njóta dýrindis veitinga í veislusal Samskipahallarinnar. Boðið verður upp á súpu og kjúklingabringur í pestó rjómasósu með hrísgrjónum og fersku salati. 

Einnig minnum við á fyrir þá sem búa utan landsteina eða út á landi að hægt er að horfa á deildina beint inn á OZ.COM eða gerast áskrifandi inn á Stöð 2 Sport

Rásröð

No. Knapi Hestur Faðir Móðir Aldur Litur Lið
1 Elin Holst Frami frá Ketilsstöðum Sveinn-Hervar frá Þúfu í Landeyjum Framkvæmd frá Ketilsstöðum 11 Brúnn Gangmyllan
2 Sigurður Sigurðarson Hamar frá Hafsteinsstöðum Hróar frá Hafsteinsstöðum Brynhildur frá Hólum 13 Grár Oddhóll/Þjóðólfshagi/Efsta-Sel
3 Árni Björn Pálsson Flaumur frá Sólvangi Gaumur frá Auðsholtshjáleigu Fluga frá Breiðabólsstað 9 Jarpur Top Reiter
4 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Óskar frá Breiðstöðum Herjólfur frá Ragnheiðarstöðum Fantasía frá Breiðstöðum 7 Jarpur Ganghestar/Margrétarhof/Equitec
5 Hulda Gústafsdóttir Valur frá Árbakka Hnokki frá Fellskoti Valdís frá Árbæ 7 Bleikál. Árbakki/Hestvit/Sumarliðabær
6 Berglind Ragnarsdóttir Frakkur frá Laugavöllum Orri frá Þúfu í Landeyjum Freyja frá Kirkjubæ 17 Jarpur Oddhóll/Þjóðólfshagi/Efsta-Sel
7 Bergur Jónsson Glampi frá Ketilsstöðum Álffinnur frá Syðri-Gegnishólum Ör frá Ketilsstöðum 7 Rauður Gangmyllan
8 Matthías Leó Matthíasson Taktur frá Vakursstöðum Smári frá Skagaströnd Líra frá Vakurstöðum 7 Brúnn Top Reiter
9 Ragnar Tómasson Sleipnir frá Árnanesi Prestur frá Kirkjubæ Skuld frá Árnanesi 15 Rauður Árbakki/Hestvit/Sumarliðabær
10 Sylvía Sigurbjörnsdóttir Sæmd frá Vestra-Fíflholti Hróður frá Refsstöðum Varða frá Vestra-Fíflholti 9 Fífilbl.bles Auðsholtshjáleiga
11 Hinrik Bragason Arður frá Efri-Þverá Eldjárn frá Tjaldhólum Hornafjarðar-Jörp frá Háfshjáleigu 9 Jarpur Árbakki/Hestvit/Sumarliðabær
12 Viðar Ingólfsson Maístjarna frá Árbæjarhjáleigu Óskar frá Blesastöðum 1A Móa frá Skarði 7 Brún Hrímnir/Export hestar
13 Agnes Hekla Árnadóttir Spyrna frá Strandarhöfði Rökkvi frá Hárlaugsstöðum Fiðla frá Höfðabrekku 10 Brún Top Reiter
14 Jakob Svavar Sigurðsson Júlía frá Hamarsey Auður frá Lundum II Hviða frá Ingólfshvoli 9 Fífilbl.tvístj. Lífland
15 Olil Amble Goði frá Ketilsstöðum Vænting frá Ketilsstöðum Álffinnur frá Syðri-Gegnishólum 8 Brúnn Gangmyllan
16 Guðmundur Björgvinsson Gjöf frá Strönd II Þjótandi frá Svignaskarði Þöll frá Ólafsvík 9 Brún Lífland
17 Ragnhildur Haraldsdóttir Ási frá Þingholti Þristur frá Feti Ása frá Keflavík 7 Brúnn Top Reiter
18 Sigurbjörn Bárðarson Hrafn frá Breiðholti í Flóa Rökkvi frá Hárlaugsstöðum Korpa frá Dalsmynni 12 Brúnn Oddhóll/Þjóðólfshagi/Efsta-Sel
19 Siguroddur Pétursson Steggur frá Hrísdal Þristur frá Feti Mánadís frá Margrétarhofi 9 Bleikálskj. Hrímnir/Export hestar
20 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Sproti frá Enni Orri frá Þúfu í Landeyjum Sending frá Enni 10 Brúnn Auðsholtshjáleiga
21 Sigursteinn Sumarliðason Háfeti frá Hákoti Hnokki frá Fellskoti Óðsbrá frá Hákoti 9 Bleikál. Lífland
22 Sigurður Vignir Matthíasson Aska frá Langsstöðum Gaumur frá Auðsholtshjáleigu Hlýja frá Langsstöðum 8 Móál. Ganghestar/Margrétarhof
23 Ásmundur Ernir Snorrason Frægur frá Strandarhöfði Hnokki frá Fellskoti Framtíð frá Árnagerði 9 Rauður Auðsholtshjáleiga
24 Þórarinn Ragnarsson Leikur frá Vesturkoti Spuni frá Vesturkoti Líf frá Þúfu í Landeyjum 7 Jarpur Hrímnir/Export hestar


Fara á forsíðu

FYLGSTU MEÐ!

Bein útsending á oz.com - Náðu í áskrift hér
Watch all the events online - subscribe here

Netáskrift

styrktaraðilar

Höfundaréttur © 2008 - 2015 | Meistaradeildin í hestaíþróttum | Allur réttur áskilinn.