Meistaraknapi tekinn til kostanna: John K. Sigurjónsson
John Kristinn Sigurjónsson er í liði Líflands
Fullt nafn: John Kristinn Sigurjónsson
Gælunafn sem þú þolir ekki: Aldrei haft slíkt.
Aldur: 32
Hjúskaparstaða: Frátekinn
Hvenær tókstu fyrst þátt með Meistaradeildinni: 2011
Uppáhalds drykkur: Á engan uppáhalds.
Uppáhalds matsölustaður: Eldofninn á Bústaðavegi.
Hvernig bíl áttu: Renault kangoo er minn uppáhalds bíll, en svo er líka nauðsynlegt að eiga pickup líka.
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Horfi lítið á sjónvarp.
Uppáhalds tónlistarmaður: Hlusta bara á útvarpið og hef ekkert vit á tónlist.
Skemmtilegasti “vinur" þinn á Snapchat: Vargurinn getur verið skemmtilegur.
Hvað viltu í bragðarefinn þinn: Fæ mér MJÖG oft ís en sjaldnast bragðaref, en ef þá: sætristaðar hnetur, jarðaber og mintukúlur, þetta er blanda sem ég mæli með og að sjálfsögðu gamli ísinn hjá Jóni í Skalla, hann er á allt öðru plani en annar ís úr vél!
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Man það ekki
Sætasti sigurinn: Ekki í höfn
Mestu vonbrigðin: Mann ekki eftir neinu sérstöku, sennilega ekki nógu tapsár.
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru Meistaradeildarliði í þitt lið: Held að ég sé í alveg snilldar liði sem verður varla betra.
Fyrsta verk ef þú yrðir formaður Meistaradeildarinnar: Það fer eftir ýmsu t.d. hvar Meistaradeildin verður í framtíðinni. Ef hún verður á Ingólfshvoli þá myndi ég splæsa í litla rennihurð á gaflinn á reiðhöllinni, mig hefur alltaf langað að sjá hestana koma þar inn. Það liggja ansi margir kostir í því t.d. flottari sýning betra renneri inn, og út í viðtalið og menn ekki á fleygiferð á steypunni og inn, meira pláss ofl.
Fallegasti hestamaðurinn á Íslandi: Hafliði Þórður
Fallegasta hestakonan á Íslandi: Marta Bryndís
Hver er mesti höstlerinn í liðinu: Kobbi
Mest óþolandi knapinn í liðinu: Þetta er nátturulega alveg nýtt lið og við erum ekki einu sinni búnir að taka æfingu svona saman, þannig að það er ómögulegt að spá fyrir um það.
Uppáhalds staður á Íslandi: Hveragerði
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í keppni: Erfitt.....
Hvað er það fyrsta sem þú gerir þegar þú vaknar: Kíkja á mbl, færð og veður.
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Ég er náttúrulega afleiddur námsmaður en ætli stærðfræðin standi ekki þar uppúr.
Uppáhalds Eurovision lag frá upphafi: Þekki það ekki.
Vandræðalegasta augnablik: Man það ekki.
Hvaða tvo knapa sem tækir þú með þér á eyðieyju: Ég myndi helst ekki taka með mer hestamann á eyðieyju.
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Held að ég hafi aldrei lesið heila bók á ævinni, og les helst ekki.
Fyrir utan hestamennsku, fylgist þú með öðrum íþróttum: Fylgist ekki með neinum íþróttum.