Meistaraknapi tekinn til kostanna: Ragnhildur Haraldsdóttir
Ragnhildur Haraldsdóttir keppir í fyrsta sinn í Meistaradeildinni í vetur en hún er í liði Ganghesta / Margrétarhofs / Equitec
Fullt nafn: Ragnhildur Haralsdóttir
Gælunafn sem þú þolir ekki: Miss Ö
Aldur: 31
Hjúskaparstaða: einhleyp
Hvenær tókstu fyrst þátt með meistaradeildinni: Núna
Uppáhalds drykkur: hvítur toppur
Uppáhalds matsölustaður: Apótekið
Hvernig bíl áttu: toyota land cruiser
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Hart of Dixie
Uppáhalds tónlistarmaður: Bruno Mars
Skemmtilegasti “vinur" þinn á Snapchat: “Aðal fólkið”
Hvað viltu í bragðarefinn þinn: ef það er hucky pulver þá er mér nokkuð sama um rest
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Takk Ragga !
Sætasti sigurinn: 5 gangur á Suðurlandsmóti 2014, mjög persónulegur sigur fyrir mig.
Mestu vonbrigðin: Engin vonbrigði
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru Meistaradeildarliði í þitt lið: Sylvía Sigurbjörs
Fyrsta verk ef þú yrðir formaður Meistaradeildarinnar: Halda meistaradeildina á Ingólfshvoli
Fallegasti hestamaðurinn á Íslandi: Við Aðalheiður erum sammála um að Reynir Örn er mesti folinn.
Fallegasta hestakonan á Íslandi: Rúna Einars
Hver er mesti höstlerinn í liðinu: Reynir
Mest óþolandi knapinn í liðinu: Við erum öll svo frábær maður!
Uppáhalds staður á Íslandi: Sveitin
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í keppni: Alltaf skemmtilegt þegar maður er vel stemdur, gott veður og maður er sáttur með hestinn sinn og líður vel að ríða honum inn á vellinum. Þá er gaman :)
Hvað er það fyrsta sem þú gerir þegar þú vaknar: fara í sturtu
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: þýsku
Uppáhalds Eurovision lag frá upphafi: nei eða já
Vandræðalegasta augnablik: Þegar Hafliði fattaði að ég hafði stolist í fílakarmellurnar hans. Ég keypti svo nýjar fyrir hann.
Hvaða tvo knapa sem tækir þú með þér á eyðieyju: Söru Sigurbjörs og Rósu Birnu.
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Alltaf spurð um skilríki í ríkinu
Fyrir utan hestamennsku, fylgist þú með öðrum íþróttum: það er þá helst handboltinn