Daníel Jónsson
Daníel Jónsson er ókrýndur kynbótakóngur landsins og hefur í fjöldamörg ár verið áberandi sem sýningamaður á kynbótahrossum og hampað þar mörgum titlum. Hann var kynbótaknapi ársins 2014, 2015, 2016 og 2017, og einnig gæðingaknapi ársins 2017. Daníel hefur einnig mikinn áhuga á hrossarækt og ræktar hross kennd við Efsta-Sel.