Lokamótið á föstudaginn
Síðasta mót Meistaradeildar í hestaíþróttum verður haldið 7. apríl í Samskipahöllinni í Spretti í Kópavogi. Keppt verður í tölti og skeiði í gegnum höllina en keppnin hefst kl. 19:00
Í fyrra var það Árni Björn Pálsson sem sigraði töltið á Skímu frá Kvistum og Bjarni Bjarnason sigraði flugskeiðið á Heru frá Þóroddsstöðum. Það er mikil spenna í einstaklingskeppninni en mjótt er á munum á efstu keppendum.
Ekki missa af lokakvöldinu og sjá hver verður Meistarinn árið 2017 en hægt er að nálgast miða í Ástund, Top Reiter og Baldvini og Þorvaldi á Selfossi.