Tveir nýir í liði Gangmyllunnar

Fimmta liðið sem við kynnum til leiks er lið Gangmyllunnar. Gangmyllan var í fyrsta skipti með lið í Meistaradeildinni árið 2013. Liðstjóri er Bergur Jónsson en með honum eru Daníel Jónsson, Elin Holst, Freyja Amble Gísladóttir og Ævar Örn Guðjónsson.  

Bergur Jónsson hefur verið viðloðandi hestamennsku frá barnæsku.  Hann er frá Ketilsstöðum og hefur verið áberandi í keppni í áratugi. Hann hefur sýnt fjöldan allan af hrossum úr eigin ræktun og náð mjög góðum árangri á keppnisbrautinni. Vakti hann mikla athygli í fyrra á Kötlu frá Ketilsstöðum en þau áttu góðu gengi að fagna.

Daníel Jónsson er ókrýndur kynbótakóngur landsins og hefur í fjöldamörg ár verið áberandi sem sýningamaður á kynbótahrossum og hampað þar mörgum titlum.  Daníel hefur einnig látið að sér kveða í keppnum, sigraði m.a. A-flokk gæðinga á Landsmóti árið 1994 og hefur tekið þátt í heimsmeistaramótum.

Elin Holst er norsk en búin að vera vinna fyrir þau Olil og Berg á Syðri-Gegnishólum síðast liðin 7 ár. Elin hefur náð góðum árangri bæði á kynbótabrautinni sem og á keppnisbrautinni. Hún og hestur hennar Frami frá Ketilsstöðum hafa gert það mjög gott en þau sigruðu fjórganginn, slaktaumatöltið og urðu samanlagðir fjórgangssigurvegarar á Íslandsmótinu 2016 og enduðu í fjórða sæti í B flokknum á Landsmóti 2016 og í tíunda sæti í tölti.

Freyja Amble Gísladóttir var áberandi á keppnisvellinum á sínum yngri árum en hún er margfaldur Íslandsmeistari í yngri flokkunum. Freyja hefur verið búsett í Noregi síðustu árin en strafar nú hjá Gangmyllunni.

Ævar Örn Guðjónsson er menntaður tamningamaður og reiðkennari frá Háskólanum á Hólum. Hann hefur starfað sem tamningamaður og þjálfari hjá Hestum ehf. síðustu ár i hestamannafélaginu Spretti. Ævar var áður er liðinu Spónn.is sem varð síðan að liði Heimahaga en er nú komin í lið Gangmyllunnar. Ævar hefur verið ötull bæði á keppnisbrautinni og kynbótabrautinni.

 

Gangmyllan er fyrirtæki sem Olil Amble og Bergur Jónsson stofnuðu i kringum hrossarækt, hestasölu og reiðkennsluna sína. Gangmyllan er staðsett í Syðri Gegnishólum í Flóhreppi, um 10 km. frá Selfossi. Undir Gangmylluna sameinast Ketilstaðahrossin, ræktun Bergs Jónssonar og ræktun Olil Amble sem er kennd við Stangarholt, Selfoss og nú Syðri Gegnishóla. Þau Olil og Bergur bjóðum upp á söluhross, hvort sem það eru kynbótahross, keppnishross eða reiðhestar. Einnig bjóða þau upp á margþætta kennslu, einkakennslu og hópkennslu á eigin hestum sem og einkakennslu á þeirra eigin hestum. Þau Olil og Bergur hafa látið mikið að sér kveða í ræktuninni og voru m.a. valin ræktunarmenn ársins 2012, 2015 og 2016 en 2015 og 2016 voru þau einnig valin ræktunarbú keppnishesta.

 

 



Fara á forsíðu

FYLGSTU MEÐ!

Bein útsending á oz.com - Náðu í áskrift hér
Watch all the events online - subscribe here

Netáskrift

styrktaraðilar

Höfundaréttur © 2008 - 2015 | Meistaradeildin í hestaíþróttum | Allur réttur áskilinn.