Nýtt lið með reyndum knöpum

Meistaradeildin í hestaíþróttum hefst 30.janúar 2020. Þar munu átta lið og 40 knapar etja kappi saman en eftir veturinn mun einungis eitt lið og einn knapi standa uppi sem sigurvegari.

Fyrsta liðið sem við kynnum til leiks er lið Hjarðartúns en liðið kom nýtt inn í deildina í haust. Hjarðartún er hrossaræktarbú rétt fyrir utan Hvolsvöll og er í eigu Bjarna Elvar Pjeturssonar og Kristínar Heimisdóttur. Knapar liðsins hafa allir áður keppt í deildinni en liðsstjóri liðsins er Helga Una Björnsdóttir og með henni eru þeir Elvar Þormarsson, Hans Þór Hilmarsson, Jakob Svavar Sigurðsson og Þórarinn Ragnarsson.

Helga Una Björnsdóttir, liðsstjóri, útskrifaðist sem reiðkennari frá Háskólanum á Hólum árið 2018. Helga Una er reynslu mikill knapi og hefur skapað sér gott orð bæði á keppnisbrautinni sem og kynbótabrautinni. Helga Una setti heimsmet á Sendingu frá Þorlákshöfn sumarið 2015 þegar hún sýndi hana í 8,64, sem var þá hæsta aðaleinkunn sem klárhross hafði hlotið. Helga Una hefur einnig náð góðum árangri í ræktun og vakti hún mikla athygli á hesti sínum Bikari frá Syðri-Reykjum. Helga Una varð einnig Íslandsmeistari á Besta frá Upphafi í 100m. skeiði og á Þoku frá Hamarsey í slaktaumatölti árið 2019. 

Elvar Þormarsson stundar tamningar og þjálfun á Hvolsvelli og ræktar hross kennd við Strandarhjáleigu. Elvar hefur verið ötull á keppnisvellinum sem og kynbótabrautinni síðustu ár. 

Hans Þór Hilmarsson er menntaður reiðkennari og tamningamaður frá Hólaskóla. Hann starfar við tamningar og þjálfun í Hjarðartúni en Hansi hefur náð góðum árangri á keppnis- og kynbótabrautinni. Var m.a. 4. sæti í A-flokki árið 2012, á besta tímann á árinu í 100.m skeiði 2015 og var í A-úrslitum í fimmgangi 2016 á Lukku-Láka frá Stóra-Vatnsskarði. 

Jakob Svavar Sigurðsson er tamningamaður og reiðkennari frá Hólaskóla. Hann rekur tamningastöð að Fákshólum. Hann hlaut knapaverðlaun FT á LM2008 og LM2016. Hann er margfaldur Íslandsmeistari og varð heimsmeistari í tölti árið 2017 á Gloríu frá Skúfslæk. Jakob sigraði B flokkinn á LM2016 á Nökkva frá Syðra-Skörðugili og varð í þriðja sæti í A flokki á Skýr frá Skálakoti. Hann hefur jafnframt verið að gera góða hluti í kynbótasýningum. Jakob var kosinn íþróttaknapi ársins 2012, 2013, 2017 og 2018, gæðingaknapi ársins 2016 og knapi ársins 2017.

Þórarinn Ragnarsson er menntaður tamningamaður og reiðkennari frá Háskólanum á Hólum. Hann stundar þjálfun og tamningar í Vesturkoti á Skeiðum. Hefur náð góðum árangri á keppnisbrautinni en hann sigraði m.a. A flokkinn á LM2014 á Spuna frá Vesturkoti og var í A úrslitum í tölti á sama móti á Þyt frá Efsta-Dal. Þórarinn og Spuni urðu einnig Íslandsmeistarar í fimmgangi árið 2017 og sigruðu sömu grein á Reykjavíkurmótinu sama ár. Þytur og Þórarinn sigruðu einnig Þá alla sterkustu, ístöltsmótið, sem haldið var vorið 2014. Þórarinn var valin gæðingaknapi ársins 2014.

Hrossaræktarbúið Hjarðartún er staðsett í Hvolhreppi u.þ.b 2 km norður af Hvolsvelli. Í Hjarðartúni er frábær aðstaða sem tekin var í notkun árið 2007. Þáverandi eigandi, Óskar Eyjólfsson, byggði hesthús sem rúmar 36 hross ásamt reiðhöll, vélaskemmum og nýju íbúðarhúsi. Óskar ræktaði hross undir nafni Hjarðartúns, þar sem hestagullið og Landsmótssigurvegarinn Dögg frá Breiðholti var ein af aðalræktunarhryssum búsins. Árið 2015 kaupa hjónin Kristín Heimisdóttir og Bjarni Elvar Pjetursson og félag þeirra Einhyrningur ehf Hjarðartún og halda áfram uppbyggingu og ræktun búsins þar sem 3 til 4 tamningamenn starfa allan ársins hring. Í dag samanstendur ræktunin af hryssum frá Hjarðartúni og Eystra-Fróðholti með áherslu á að rækta undan langræktuðum gæðingshryssum. 

 


Fara á forsíðu

FYLGSTU MEÐ!

Bein útsending á oz.com - Náðu í áskrift hér
Watch all the events online - subscribe here

Netáskrift

styrktaraðilar

Höfundaréttur © 2008 - 2015 | Meistaradeildin í hestaíþróttum | Allur réttur áskilinn.