Jakob sigrar töltið

Æsispennandi töltkeppni er lokið í Meistaradeildinni í hestaíþróttum en þá er einungis ein grein eftir og hefst keppni í flugskeiði seinna í kvöld. Jakob Svavar Sigurðsson leiddi nokkuð örugglega eftir forkeppni með 8,63 í einkunn. Í öðru sæti var Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir á Kveik frá Stangarlæk en þau hlutu 8,07 í einkunn. Þetta var frumraun Kveiks í keppni og biðu margir spenntir eftir að sjá hann enda sló hann heimsmet í fyrra þegar hann hlaut hæsta kynbótadóm sem klárhestur hefur hlotið. Í þriðja sæti var síðan Hulda Gústafsdóttir á Draupni frá Brautarholti með 7,90 í einkunn. Úrslitin voru æsispennandi en eftir fyrsta atriðið, hægt tölt, voru þau þrjú jöfn Jakob, Viðar Ingólfsson og Elin Holst með 8,50 í einkunn. Eftir hraðabreytingar tók Jakob forustuna en hann hlaut 8,67 fyrir það atriði. Annar var Viðar á Maístjörnu með 8,00 í einkunn. Eftir greiða töltið var það ljóst að Jakob og Júlía sigruðu með 8,44 lokaeinkunn en Aðalheiður og Kveikur hlutu hæstu einkunn fyrir greiða töltið eða 9,0 og náðu að tryggja sér annað sætið með 8,22 í lokaeikunn. Í þriðja sæti varð Viðar Ingólfsson með 7,94 í einkunn.

Liðaplattan hlutu lið Hrímnis/Export hesta en þeir leiða líka liðakeppnina. Eftir töltið er Top Reiter komið í annað sætið og Gangmyllan í það þriðja. Jakob leiðir enn einstaklingskeppnina en nú er 5,5 stig á milli hans og Aðalheiðar sem er í öðru sæti.

Niðurstöður úr töltinu

Tölt - A úrslit
1 Jakob Svavar Sigurðsson Júlía frá Hamarsey Lífland 8.44
2 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Kveikur frá Stangarlæk 1 Ganghestar / Margrétarhof 8.22
3 Viðar Ingólfsson Maístjarna frá Árbæjarhjáleigu II Hrímnir / Export hestar 7.94
4 Elin Holst Frami frá Ketilsstöðum Gangmyllan 7.89
5 Hulda Gústafsdóttir Draupnir frá Brautarholti Hestvit / Árbakki / Sumarliðabær 7.61
6 Siguroddur Pétursson Steggur frá Hrísdal Hrímnir / Export hestar 7.61

 

Tölt - Forkeppni
Nr. Knapi Hestur Lið Einkunn
1 Jakob Svavar Sigurðsson Júlía frá Hamarsey Lífland 8.63
2 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Kveikur frá Stangarlæk 1 Ganghestar / Margrétarhof 8.07
3 Hulda Gústafsdóttir Draupnir frá Brautarholti Hestvit / Árbakki / Sumarliðabær 7.90
4 Viðar Ingólfsson Maístjarna frá Árbæjarhjáleigu II Hrímnir / Export hestar 7.90
5 Siguroddur Pétursson Steggur frá Hrísdal Hrímnir / Export hestar 7.70
6 Elin Holst Frami frá Ketilsstöðum Gangmyllan 7.67
7 Árni Björn Pálsson Hátíð frá Hemlu II Top Reiter 7.63
8 Þórarinn Ragnarsson Hringur frá Gunnarsstöðum Uppboðssæti 7.50
9 Hinrik Bragason Hrókur frá Hjarðartúni Hestvit / Árbakki / Sumarliðabær 7.43
10 Jóhanna Margrét Snorradóttir Kári frá Ásbrú Hestvit / Árbakki / Sumarliðabær 7.40
11 Helga Una Björnsdóttir Þoka frá Hamarsey Hrímnir / Export hestar 7.37
12 Matthías Leó Matthíasson Taktur frá Vakurstöðum Top Reiter 7.37
13 Ásmundur Ernir Snorrason Frægur frá Strandarhöfði Auðsholtshjáleiga / Horse export 7.30
14 Guðmundur Friðrik Björgvinsson Austri frá Úlfsstöðum Lífland 7.27
15 Sigursteinn Sumarliðason Saga frá Blönduósi Lífland 7.23
16 Ólafur Andri Guðmundsson Gerpla frá Feti Ganghestar / Margrétarhof 7.20
17 Telma Tómasson* Baron frá Bala 1 Ganghestar / Margrétarhof 7.20
18 John Kristinn Sigurjónsson Æska frá Akureyri Torfhús retreat 7.13
19 Teitur Árnason Brúney frá Grafarkoti Top Reiter 7.13
20 Arnar Bjarki Sigurðsson Dáð frá Jaðri Torfhús retreat 6.93
21 Sigurður Sigurðarson Líney frá Þjóðólfshaga 1 Gangmyllan 6.90
22 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Terna frá Auðsholtshjáleigu Auðsholtshjáleiga / Horse export 6.90
23 Bergur Jónsson Glampi frá Ketilsstöðum Gangmyllan 6.83
24 Hanne Smidesang Roði frá Hala Torfhús retreat 6.37
25 Sylvía Sigurbjörnsdóttir Kolbakur frá Morastöðum Auðsholtshjáleiga / Horse export 6.27

Villiköttur

 



Fara á forsíðu

FYLGSTU MEÐ!

Bein útsending á oz.com - Náðu í áskrift hér
Watch all the events online - subscribe here

Netáskrift

styrktaraðilar

Höfundaréttur © 2008 - 2015 | Meistaradeildin í hestaíþróttum | Allur réttur áskilinn.